Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Landsspítalinn.

 

Jæja þá er það komið í ljós að ég er með óreglu á kransæðakerfinu, er búinn að vera hér á hjartadeild landspítala háskólasjúkrahús síðan á Miðvikudaginn 8, er búinn að vera hér við frábæran aðbúnað eins og á fimm stjörnu hóteli.

Það er búið að þræða upp hægrihluta hjartans en vinstrihlutinn er eftir og í þessum skrifuðu orðum er ég að bíða eftir að vinstri hlutinn verði þræddur upp.

Það verður að teljast forréttindi að eiga aðgang að slíkum stað sem Landsspítalinn er, hér er fullt af mjög færu fólki sem vinnur frábæra vinnu, þó að ég sé kannski ekki alltaf sammála því sem þau segja að ég þurfi að gera, þá væri það líka merki um annað hvort að þau væru ekki að segja það sem ég þarf að heyra, eða þá að ég væri eitthvað óeðlilegur (ætlaði nú að segja skrítinn en hætti við það vegna þess að ég veit að ég er það).

Jæja nóg að sinni meira síðar.


Jæja enn getur það versnað.

 

Ég hélt að ég væri búinn að ná botninum hvað varðar stopul skrif hér inni, en svo virðist ekki vera og spyr maður sig hversu það geti versnað mikið Police, er nú svo sem ekki í neinu þunglyndiskasti yfir þessu, en finnst samt ég þurfi að bæta mig.

Ætli ég hafi ekki byrjað svona vegna þess að ég hafi fengið skyndilegt samviskubit yfir öllu saman LoLhahaha.

En jæja þá eru nú seinustu dreggjar verslunarmannahelgarinnar að líða og allt virðist hafa farið vel fram og eiginlega betur en elstumenn muna, ja nema ef vera skildi þetta uppátæki bæjarstjórnarinnar á Akureyri að banna þeim að tjalda sem hafa verið að setja bæinn á hvolf undanfarin ár, fyrir bragðið er ekki hægt að tala um hversu umgengni hafi verið slæm á Akureyri að þessu sinni, en þá er náttúruleg bara að tala um það næst besta lokunina á tjaldstæðunum Grin.

En látum sjá hvort það kemur ekki eitthvað uppbyggilegra og skemmtilegra fljótlega, þar til þá góðar stundir (hljómar eins og gamla gufan fyrir 30 árum síðanSmile)


Höfundur

Finnbogi Rúnar Andersen
Finnbogi Rúnar Andersen
Ég hef haft skoðanir á þjóðfélagsmálum alla æfi, en sjaldan sett það fram nema við þá sem eru í kringum mig. En nú ætla ég að reyna að deila þeim með öðrum og vona að það verði öðrum til skoðunarmindunar.  Ég bið fólk að hafa það hugfast að ég horfi á hlutina útfrá sjónarhól dulspekinar, því þar er minn sjónarhóll.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 347

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband