Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Dagur 11.

 

Jæja í dag var haldið í stóran tívolígarð sem hitir Terra Mítica, úúfff hringurinn í honum er 5 km, en undirritaður er nú nokkuð útsjónasamur og leigði sér forláta faratæki sko.

Þessi garður er byggður upp á forni byggingarlist, þannig að þú kemur inní forn Egyptaland og ferð þaðan inní forn Grikkland og síðan heldur þú til Rómar og endar í Spænsku þorpi, á leiðinni eru allskonar tæki, rússibanar, draugahús, vatnsrennibrautir og svo margt, margt fleira.

Þetta var alveg frábært og mikilskemmtun, á leiðinni heim átti að fá sér að borða við hraðbrautina, enda klukkan orðin nærri átta en ekki fer nú allt eins og ætlað er, það voru svona áningarstaðir útum allt en ekki leist okkur nú á það sem þar var í boði svo við enduðum á að borða rétt hér hjá á handborgarastað, en allt í lagi.

Þegar heim kom voru allir frekar þreyttir og voru allir sofnaðir fyrir tólf og enn einn frábær dagur að kvöldi kominn og því miður farið að síga á seinnihlutann hér, en svo er nú líka alltaf gott að koma heim.

Með sólarkveðjum frá Spáni og enn verður framhald í næsta þætti.


Dagur 10.

 

Kórinn hætti að hrjóta um níuleitið og við gömlu drifum morgunmat í börnin og síðan var farið á rúntinn á meðan þeir sem voru að skemmta sér (og öðrum) fengu að sofa lengur.

Við ætluðum bara að leita að opinni matvörubúð sem ekki fannst, en í staðinn fundum við kolaportið hér á Spáni og ekki eitt heldu tvö, annað undir berum himni en þitt neðanjarðar í bílakjallara, ekki var nú mikið verslað þar, þó fundum við góðar ferðatöskur undir allt sem búið er að versla J, mjög hentugt.

Síðan í kvöld fóru allir saman út að borða (það fannst engin matvörubúð um morguninn), fengum frábæran mat og þjónustu á Ítölskum stað ekki langt hér frá, síðan þegar heim var komið fóru allir snemma að sofa því að á morgun er stór tívolígarður á dagskránni, en meira um það þá.

Með sólarkveðjum frá Spáni og framhaldi á morgun sko Grin.


Dagur 9.

 

Upp er runnin sólbjartur Laugardagur og þá er markaður hér í næstu götu og við gömlu út með það sama kl 10:00 og fórum að skoða og eitthvað var nú keypt Picture 004 , og síðan rölt heim aftur og borðað hádegissnarl.

Ungu hjónin fóru svo í búðir um miðjan daginn og urðu reyndar lengur en tilstóð, en það er nú svona úr miklu að velja og svo er verðið hér svo rosalega gott (er mér sagt Wink).

Í kvöld var svo grillað að íslenskum sið það tókst bara vel og allir sáttir og síðan fór ungafólkið að leita sér ánægu á pöbbnum og við gömlu pössuðum, fjórir í einu herbyggi og hrutu í kór sem afi stjórnaði Grin.

Enn ein frábær dagur liðinn, hér hafa bara verið frábærir dagar.

Með sólarkveðum frá Spani og framhaldi í næsta þætti.


Dagur 8.

 

Þá er nú kominn seini hárleiku í Spánardvölina og var bara frekar rólegt í dag, við fórum í sundlaugargarð sem er hér í næsta nágrenni, börnin fóru í sundlaugina en hún var frekar köld, við hin sátum bara við borð og sötruðum kók úr glasi Tounge, ekkert romm.

Í kvöld pössuðum við barnabörnin á meðan pabbi og mamma fóru út og kíktu á pöbbinn ásamt Eyjó, eins og ég hef  áður haft orð á, erum við gömluhjónin búin að átta okkur á þessu með innri manninn og vínið, en ungafólkið er ennþá að leita að þessum sannleik (vona ég í það minnst Halo).

Sólarkveðjur frá Spáni og framhald í næsta þætti.


Dagur 7.

 

Jæja þá er allt slen á burt undirritaður og hans frú komin í bílinn kl 09:30 á leið í verslunarmiðstöð, það er fyrirfram vitað að þetta er ekki skoðunarferð heldur vinnuferð Errm, mætt á staðinn rúmlega tíu og tekið til höndum við að kanna svæðið, sem samanstóð af tveimur byggingum, annars vegar Hagkaup þeirra Spánverja og síðan svona einskonar Kringla eða þannig.

Hagkaupið varð fyrst fyrir valinu, en heldur fannst okkur nú úrvalið lítilfjörlegt þar og ekki mikill afrakstur af þeirri ferð Cool, svo að þá var Kringlan næst á dagskránni og vitið menn það var bara allt annað uppá teningunum, frúin fann bara þó nokkuð sem passaði henni Grin, en það hafði jú verið tilgangur þessa leiðangurs, síðan var snúið aftur í Hagkaup og keypt í matinn og vitið menn undirritaður komst að því að maturinn á Spáni er ekki ókeypis nema síður sé Halo, hafið nú svo sem óljósan grun um að það þyrfti nú að borga fyrir hann hér, hvað um það heim voru við komin fyrir kl 14:00 og bara ánægð með þennan leiðangur.

Síðan var öllum safnað saman í bílinn seinnipartinn og haldið niður í miðbæ, en þar er tívolí og svona einhverskonar kvöldmarkaður, byrjuðum á að fara á veitingarhús og fá okkur að borða Grin síðan röltum við um þennan markað og sumir fóru í tívolíið, vorum að drolla þarna fram til kl 23 en þá var haldið heim og næstum beint í rúmið Blush.

Gott að sinni, sólar og markaðskveðjur frá Spáni, framhald í næsta þætti.


Dagur 6.

 

Í dag eru algjör rólegheit undirritaður var á netinu að setja inn á bloggið og síðan var bara haldið áfram að vera í afslöppun og látið líða úr sér.

Var að lesa moggann á netinu og sé að þingið er að koma saman og ný ríkisstjórn að hefja störf, eitthvað fer nú litið fyrir málefnaumræðu sýnist mér enn sem komið, en kannski er það bara eðlilegt veit það ekki.

Læt þetta duga að sinni.

Sólarkveðjur frá spáni, framhald í næsta þætti.


« Fyrri síða

Höfundur

Finnbogi Rúnar Andersen
Finnbogi Rúnar Andersen
Ég hef haft skoðanir á þjóðfélagsmálum alla æfi, en sjaldan sett það fram nema við þá sem eru í kringum mig. En nú ætla ég að reyna að deila þeim með öðrum og vona að það verði öðrum til skoðunarmindunar.  Ég bið fólk að hafa það hugfast að ég horfi á hlutina útfrá sjónarhól dulspekinar, því þar er minn sjónarhóll.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband