mið. 13.8.2008
Ferðalok.
Jæja þá erum við nú komin heim, komum heim í gær (Mánudag) og vorum býsna ánægð með það .
Við keyrðum á Sunnudaginn niður Danmörku til bæjar sem heitir Vandel og gistum þar seinustu nóttina hjá Kalla frænda Rannveigar, fengum þar alveg frábærar móttökur grillað fyrir okkur svona uppá Íslenskan máta og allt .
Fyrr um daginn hittum við Vilborgu og Sigfús niður í Vejle sem er rétt hjá þar sem við gistum, fengum okkur ís saman og skoðuðum höfnina, eða fjörðinn sem hún stendur við og brúna sem liggur yfir hann, en fyrst og fremst vorum við nú bara að hittast.
Síðan flugum við öll saman heim í gærmorgun, fórum í loftið svona nokkurn veginn á réttum tíma, flugið var gott og við lentum svo kl 14:00 að staðartíma á keflavíkurflugvelli, eftir þetta venjulega var bíllinn sóttur á stæðið og brunað til Hafnarfjarðar til að hitta tengdamömmu sem var held ég farin að bíða svolítið mikið eftir okkur, eftir stopp þar uppá klukkutíma eða svo var síðan haldið á Skagann en þar var annar aðili farin að bíða svolítið mikið eftir okkur líka en það er Eyjólfur (prinsinn á heimilinu), þegar á Skagann kemur er hringnum lokað og Jón er kominn heim eða þannig hahaha.
Þetta er búin að vera alveg frábær ferð og frábærar móttökur sem við höfum hjá því fólki sem við hittum í Noregi og Danmörku og þökkum við kærlega fyrir okkur og vonum að þið hafið það sem allra best og með þeim orðum líkur þessari ferðasögu með brosi á vör.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Fjölskyldan
Síðurnar okkar í fjölskyldunni bæði stórra og smárra.
- Vegurinn til Ljóssins Vefsíðan mín um andlegmál.
- Andatal Um andleg mál fyrst og fremst
- Ástin mín.
- Kristín, Jónas og Prinsinn
- Patrekur og Sara Lind
- Bloggsvæði Ágústu
Athugasemdir
Blessaður frændi.
Gott að ferðin var góð hjá ykkur.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 15.8.2008 kl. 13:30
Kæri vinur.
Gott að sjá að ykkur líður vel - það er merkilegt hvað leiðin er löng undir Hafnarfjallið ... einhvern tíma hefði mann ekki munað um að renna, a.m.k. einu sinni á dag
Stína (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 10:59
Takk fyrir komuna kæru vinir,
það var ákaflega gaman að hitta ykkur og takk fyrir gott spjall.
Kidda.
Kristbjörg Þórisdóttir, 24.8.2008 kl. 12:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.