lau. 5.7.2008
Írskir dagar hér á Akranesi.
Það eru Írskir dagar hér á Akranesi um helgina með tilheyrandi húllumhæi , við hjónin höfum nú svo sem ekki verið á neinu flippi fyrir það því Rannveig er að vinna og það svona í meirikantinum því það er nóg um að vera hjá henni í vinnunni, hún er staðgengill forstöðukonunnar.
En aftur að Írskum dögum, við fórum í gærkvöldi að horfa á Írska og Skoska dansa, það voru börn sem sýndu og voru þetta svona dansar sem voru dansaðir við samkomur heldrafólksins um og fyrir 1800, það var gaman að sjá þetta en kannski hægt að standa lengi og horfa því að fyrir mann eins og mig vara þetta nú allt svona svipað á að sjá .
Síðan fórum við með hinum unglingunum og hlustuðum á Jónsa í svörtum fötum, ja það er að segja Jónsi var ekki í svörtum fötum (á mynd því til staðfestingar) hahaha, aftur á móti var hann með hljómsveitina sína með sér sem heitir Í SVÖRTUM FÖTUM eins og allir vita, það er alltaf gaman að Jónsa og félögum og líkaði okkur vel, síðan steig á svið sjálfur Björn Jörundur og að sjálfsögðu Ný Dönsk með honum, jú jú ljómandi flutti lög sem maður hefur verið að raula í langan tíma sum hver í það minnsta.
Vorum komin heim fyrir miðnætti enda við bæði alveg laus við að þurfa að innbyrða alkóhól við svona tækifæri eða yfirleitt þannig að þegar þessu var lokið fórum við samsagt heim að sofa, veit ekki hvort ég nenni eitthvað að verða á rápi í dag Rannveig fór í vinnuna fyrir hálf tólf og kemur ekki heim fyrr en eftir hálf tólf í kvöld, það kemur sjálfsagt bara í ljós.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Fjölskyldan
Síðurnar okkar í fjölskyldunni bæði stórra og smárra.
- Vegurinn til Ljóssins Vefsíðan mín um andlegmál.
- Andatal Um andleg mál fyrst og fremst
- Ástin mín.
- Kristín, Jónas og Prinsinn
- Patrekur og Sara Lind
- Bloggsvæði Ágústu
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.