fim. 12.4.2007
Lýðræði, hvað kostar það?
Mér finnst á stundum að þessi spurning sé áleitin þegar maður hlustar á stjórnmálamenn í dag, því að þeir eru að leifa sér að láta að því liggja að við kjósendur höfum ekki á því vit hvað hlutirnir kosta og um leið að þjóðarbúið megi ekki við því að vilji okkar kjósenda nái fram að ganga, en þá vill ég spyrja, hverjir hafa ekki efni á, eða hvaða þjóðarbú hefur ekki efni á?
Vegna þess að þegar horft er á þennan málflutning finnst mér skína í gegn að það eru þeir sem nú þegar eiga meiri peninga en þeir geta nokkru sinni notað sem eru að tapa á lýðræðinu en ekki við sem hvort sem er eigum enga peninga, og þá sé kannski jafnvel hætta á því að við gætum eignast peninga, sem væri kannski verst af öllu.
Þetta er nú kannski svolítið harkalega sagt, en það fer bara óendanlega í taugarnar á mér þegar þessir menn sem eru að biðja okkur um að kjósa sig á Alþingi koma á sama tíma og segja að ég geti ekki haft vit á þessu eða hinu til að kjósa um það og segja hvort ég vilji það eða ekki, hvernig á ég þá að hafa vit á því hvort hinn eða þessi er hæfur til að setjast á Alþingi,ég sé ekkert nema þversagnir í þessu öllu og sennilega best að fara að skrifa um eitthvað annað en stjórnmál og kosningar, leifa þessu bara að fara sinn veg enda varla fær um annað miðað við það sem ég sagði hér fyrr.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Fjölskyldan
Síðurnar okkar í fjölskyldunni bæði stórra og smárra.
- Vegurinn til Ljóssins Vefsíðan mín um andlegmál.
- Andatal Um andleg mál fyrst og fremst
- Ástin mín.
- Kristín, Jónas og Prinsinn
- Patrekur og Sara Lind
- Bloggsvæði Ágústu
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.