Færsluflokkur: Dægurmál

Blessaður þorskurinn framhald.

 

Ég er búinn að vera að ræða um veiðiheimildir og þó aðallega lífríkið í hafinu hér fyrir neðan og ætla að bæta nokkrum orðum þar við.

Það hefur aldrei talist gott í mínum huga að þusa bara um hlutina og hafa síðan ekkert til að benda á í staðin.

Mér finnst til dæmis núna þegar skorið er niður með þeim hætti sem gert var að þá eigi sá niðurskurður ekki að vera flatur niðurskurður á allan flotann, þegar ég segi þetta er ég ekki að hugsa um að láta byggðir hafa mis mikið eftir útreiknuðum skaða þeirra og mikilvægi þorskveiða þær, heldur er ég að hugsa um að skerðing yrði meiri á þau skip sem eru stór og þannig sannarlega hafa slæm áhrif á lífríki sjávar, þeir sem eru að veiða með línu og öðrum vistvænum hætti fái meira úr þessum heimildum.

Það eru ekki aðeins vistvæn rök fyrir þessari hugmynd heldur eru líka atvinnuleg rök fyrir henni, því að þau skip sem aðallega stunda þessar veiðar koma með aflann til vinnslu í landi og skapa þannig aukið atvinnuöryggi hringinn í kringum landið.

En mergurinn málsins er sá að við verðum að hætta að ganga um auðlindir okkar með það hugarfar að hugsa aðeins um það sem við erum að nýta sjálf og þannig láta okkur standa á sama um hvernig lífríkið lítur út þegar við höfum tekið allt sem við getum nýtt, það er ekki sæmandi þjóð sem segist vera vistvæn, sem notar þau rök til að sökkva stórum landsvæðum undir vatn að það sé til að búa til vistvæna orku, það er ekki sæmandi slíkri þjóð loka síðan augunum fyrir því hvernig gengið er um hafsbotninn, hann er land líka síðast þegar ég vissi í það minnsta.

Læt þetta duga um þetta efni að sinni.


Blessaður þorskurinn.

 

Það er búinn að vera mikil umræða um aflaheimildir og allt sem fylgir veiðiráðgjöf hafró að undanförnu.

Þegar ég hef verið að hlusta á þetta allt finnst mér umræðan alltaf vera útfrá einu sjónarhorni, það er við veiðum of mikið eða ekki.

Þegar ég horfi á þessa hluti finnst mér að það gleymist alltaf hvað annað er að hafa áhrif lífríkið í sjónum.

Við getum byrjað á að nefna hvaða áhrif öll þessi stóru troll hafa á botninn og lífríkið þar, eða heldur fólk að það myndi ekki hafa alvarleg áhrif hér á þurrlendinu ef að eitthvað sambærilegt væri dregið fram og til baka yfir stóran hluta af landinu og allur gróður mundi hverfa, ekki bara skógur heldur líka gras og hólar og hæðir yrðu smásaman jöfnuð út.

Í mínum huga er ekki nokkur spurning um það, að sífellt stærri troll eru búin að umbreyta hafsbotninum á stórum svæðum og að ÞAÐ hlýtur að hafa áhrif á allt annað á þessum svæðum, vegna þess að þarna er verið að raska lífkeðjunni og þegar eitthvað hverfur úr þessari keðju þá hefur það áhrif alla leið, hvort heldur það er í þorskstofns stærð eða í viðkomu á síli eða yfir höfuð hverju sem er, en við mennirnir erum bara þannig gerir að við höldum að vitum allt og getum síðan gert það sem við viljum EINS og við viljum gera það, en staðreyndin er bara sú að allstaðar þar sem maður fer að ákveða í sínum geðþótta hvað er „rétt" í náttúrunni og hvernig eigi að nýta hana best, ja þar verður eftir EIÐI MÖRK spurnin er bara hvað það tekur langan tíma.

Framhald í næsta þætti.


Ferðalögum lokið.

 

Jæja þá er maður kominn heim þetta árið og ferðalögum lokið Grin, þá getur maður tekið til við að horfa í kringum sig á ný.

Við fórum með tjaldvagninn austur á Hellu um seinustu helgi og tókum með okkur tvö af barnabörnunum og áttum þar góðan tíma, nutum þess að vera með börnin og slaka örlítið á.

Síðan reyndist þetta líka hin besta ákvörðun þar sem Írskir dagar voru haldnir hér á Skaganum með tilheyrandi uppákomum  sem verða að teljast misjákvæðir í heild sinni, síðan er við Skagamenn að takast á við afleiðingar af seinasta deildarleik ÍA og virðist það teygja sig langt út fyrir bæjarmörk þessara tveggja bæja, því að austur á Hellu hitti ég foreldra barna sem okkar barnabörn voru að leika sér við og eitthvað hefur hann verið búin að komast að því að við búum á Skaganum, því að þegar ég kem til að sækja þau í mat spyr hann eruð þið af Skaganum? Já svar ég, ja nú er ýlt efni við erum nefnilega Keflavík! En reyndar hlógum við báðir á eftir Smile.

Látum þetta duga að sinni, en meira fljótlega og þá um menn og málefni. Police


Íslenskar myndir.

 

Jæja þá er maður nú kominn heim fyrir framan tölvuna eins og svo oft og nú á að setja inn myndir sem voru teknar á hringferð um landið eða þannig.

Svo er nú vonandi að maður fari að hafa skoðun á einhverju til að skrifa um Grin.


Kárahnjúkar.

Jæja þá er maður búinn að líta þann merka stað Kárahnjúka augum, en það gerðist 19 Júní og það gerðist meira að segja á örlítið sérstakan hátt sko.

Þannig var það að við ókum eins og leið lá frá Hallormsstað upp að Kárahnjúkum og þegar þangað kom fór ég að litast um og fannst einhvern vegin ekki auðvelt að átta mig á hvert ætti að fara þannig að ég ók svona sem leið lá í átt að þessari frægu stíflu og þar sem enginn stoppaði mig hélt ég áfram í gegnum svæðið og yfir stífluna og áfram þar til vegurinn fór undir vatnið í Hálslóni, það sem ég var að gera mig kláran til að taka mynd af þessum merka stað kom það að maður á bíl merktum Landsvirkjun sko óóó hvað hafði ég nú gert?  hann renndi niður rúðunni og spyr ert þú að vinna hér?  nei svaraði ég, nú og hvernig komstu hingað, ókstu yfir stífluna? já svaraði ég,  veistu ekki að þetta er lokað vinnusvæði, sástu ekki skiltið sem segir það? ja er ekki viss, sá bara skilti sem sagði að það ætti að víkja fyrir vinnuvélum, og keyrðirðu yfir stífluna? já, þetta er lokað vinnusvæði endurtók hann og stíflan lokuð fyrir umferð, ertu þá að sega að ég komist ekki til baka? (var nú farið að fara um suma því hin leiðin til Egilsstaða var býsna löng ef hún var fær) en það fæddist bros því hann svaraði, komdu ég fylgi þér til baka, þannig keyrði ég í sérstakri fylgd til baka svona eins og fyrirmenn gera hahaha.

 

Eftir þetta ævintýri héldum við aftur til baka sem leið lá og tókum hægri beygju er niður í Fljótsdal kom og skoðuðum Skriðuklaustur og fannst okkur mikið til koma að sjá Danskan herragarð austur á fjörðum, síðan var haldið heim í tjaldvagninn á ný og skemmtilegur dagur að kveldi komin.

Með sólarkveðu að austan.


18 Júní.

 

Jæja góðan dag!  Fyrst er að greina frá því að pistillin hér á undan sem átti að fara inn í gær (17 Júní) komst ekki til netheima vegna þess að netkaffið sem ég nota var lokað þegar mér þóknaðist að heimsækja það hahaha.

En í gær var haldið til Seiðisfjarðar og átti bara að grípa þjóhátíðarstemminguna á hverjum stað fyrir sig, það var gaman að koma til Seiðisfjarðar sjá það sem þar er, en ekki varð maður nú var við neina sérstaka stemmingu þar svona umfram það sem búist var við og eðlilegt telst.

Það var haldið til Bogarfjarðar Eystri og litast um  það, við fórum í Álfastein (það er að segja fyrirtækið) Smile og fengum okkur kaffi og með því, á leiðinni þangað og til baka rifjaðist upp fyrir oss gamla góða vegakerfið okkar   Devil, eins og sagt er það er holt að hafa það gróft.

Þegar við komum til baka heim á okkar mjög svo góða tjaldheimilli var þjóðhátíðargrill og síðan var haldið út á Egilsstaði til að leita að gleðskap í tilefni dagsins, en það sem við fundum var bein útsending frá leik Íslands og Serbíu í handbolta, sem reyndar var gaman að horfa á ÁFRAM ÍSLAND.

Síðan var farið að undirbúa nóttina tekin nokkur spila til að loka deginum.

Með kveðju að austan.


Þjóðhátíðardagur.

 

Þá er runnin upp 17 Júní og ekki veit ég hvort það er bara eitthvert lögmál að ekki skuli vera sól á þessum degi eða hvað það er, en við vöknuðum í skýjuðu veðri og örlitlum vindi hér í Hallormsstaðarskógi J.

Í gær hinsvegar vorum við hér í yndislegu veðri hitinn svona 17 - 20 stig og frábært veður.

Við lögðum frekar snemma af stað og héldum til Reyðarfjarðar og litum þar nýjustu stórframkvæmd íslandssögunnar það er nú með það eins og svo margt að það væri hægt að skrifa heila ritgerð um þá framkvæmd, bæði með og á móti, en ég læt mér nægja að segja að ekki fannst mér nú útsýnið verða fegurra fyrir vikið er ég ók þar framhjá, en annars mjög fallegt í Reyðarfirði í logni og sól.

Síðan var ekið sem leið lá til Eskifjarðar og svipast þar um, ekkert álver þar Smile, síðan var lagt á oddskarð og ekki finnst mér það nú vera nein lágheiði sko Gasp, en þar sem ég var nú kenndur Alþýðubandalagið sáluga þá varð ég nú að fara og heimsækja mekka vinstrimanna á Íslandi, gat bara ekki látið það ógert Cool og þegar til Neskaupstaðar kom blasti við fallegur bær að mínu mati, að vísu liggur bærinn undir háum fjöllum en í því felst líka fegurð, við keyrðum um bæinn sem virtist snyrtilegur og fundum þar mjög snyrtilega sundlaug sem við heimsóttum sérstaklega og nutum þess að liggja þar í pottunum í sólarblíðunni.

Á bakaleiðinni stoppuðum við á Eskifirði og fengum okkur nesti sem frú Rannveig hafði smurt um morguninn Grin og ég komst að því að maður gerir alltof lítið af þessum gamla sið að taka með sér nesti J ummm.

Síðan var haldið til baka í Hallormsstað, undirritaður reyndi að bæta útlit sitt með að fá sér fegrunarblund og veit svosem ekkert um hvort það hefur virkað eitthvað, en vonar það besta Tounge, um kvöldið var svo grillað að sjálfsögðu og síðan spilað rommý og þrátt fyrir að undirritaður ætti frábæra byrjun varð hann að sætta sig við tap eða þannig Crying.

Með þjóðhátíðarkveðum frá Hallormsstðarskógi.


Hallormsstaður.

 

Góðan daginn!  Nú er kl 07:45 að staðartíma í Hallormsstaðarskógi og við búin að vera á ferð um Ísland frá því á Sunnudag, með tjaldvagninn okkar í eftirdragi, það er verið að vígja hann sko, við erum búin að fá frábært veður allan tímann aðeins smá hitaskúr hér í gærkvöldi, hins vegar höfum við komist að því að kannski er betra að fara fyrst í útilegu á íslandi og síðan í sólarlandaferð til Spánar Grin, svona vegna hitamunar eða þannig.

Við byrjuðum á að fara á Sauðarkrók til pabba og vorum þar í tvær nætur, síðan keyrðum við í Kjarnaskóg við Akureyri og vorum þar í aðrar tvær nætur, þar í grennd er jólahúsið og skoðuðum við það að sjálfsögðu Wink, það er voða gaman að koma svona í heim jólanna í 10 mínútur um miðjan Júní Smile.

Síðan var nú nokkrum tíma varið í heitapottunum svona til að vega upp hitamuninn frá í síðustu viku Blush, því þessar fyrstu 4 nætur voru svolítið kaldar bæði á meðan verið er að jafna út hitamuninn frá Spáni og svo var bara frekar kalt á nóttunni, á fimmtudaginn var tekið upp og fyrirhugað að halda hingað austur, en vegna þess að við töfðumst á Akureyri þá fórum við nú bara í Vaglaskó og vorum þar yfir nóttina, sváfum alveg rosa vel við undirleik frá ánni, komum síðan hingað um miðjan dag í gær og áttum hér góða nótt, hér er meiningin að vera í nokkrar nætur við sjáum til hvernig það verður.

Með sólarkveðjum að austan.


Myndir.

 

Jæja þá eru komið meira af myndum inn frá Spáni ef einhver hefur áhuga á að skoða þær. Blush


Heima.

 

Jæja þá er maður kominn heim og lífið er svona að taka á sig fasta mynd á ný, þótt að næsta ferð ekki langt undan því að á morgun er ráðgert að leggja upp með tjaldvagninn og ferðast um sitt eigið land, það verður alveg örugglega ekki minna gaman en ferðin til Spánar og maður er farin að hlakka til.

Ég hélt að við hefðum tekið sólina með okkur heim frá Spáni, en svo er bara súld og þoka svo að maður verður að kyngja því að ekki hefur maður nú svo mikil völd Smile að breyta veðrinu.

Jæja látum þetta duga, kannski maður geti sett hér inn af og til smá ferðasögu af og til næstu daga.

Með sól í hjarta kveðjur frá Akranesi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Finnbogi Rúnar Andersen
Finnbogi Rúnar Andersen
Ég hef haft skoðanir á þjóðfélagsmálum alla æfi, en sjaldan sett það fram nema við þá sem eru í kringum mig. En nú ætla ég að reyna að deila þeim með öðrum og vona að það verði öðrum til skoðunarmindunar.  Ég bið fólk að hafa það hugfast að ég horfi á hlutina útfrá sjónarhól dulspekinar, því þar er minn sjónarhóll.
Júní 2024
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband