fös. 23.2.2007
Fjölskyldan stækkar
Það er búið að vera mikið um að vera hjá mér seinustu daga enda var að fjölga í fjölskyldunni um einn.
Það er semsagt fæddur lítill prins sem var aðeins 8 merkur og 45 sm, en það er nú ekkert svo lítið er það?
Hann kom aðeins á undan því sem ætlað var en er hraustur eins og afinn, en hann og mamman hafa átt tíma minn og því ekkert heyrst frá mér í gær eða dag.
Það er annars af nógu að taka finnst mér, eins og KLÁMRAÐSTEFNA sem mér finnst eins og sjálfsagt flestum ekkert til að hrópa húrra fyrir, EN það verður samt að gilda ein lög í landinu og á meðan fólk er ekki á skrá sem afbrota menn er ekki hægt að segja því að koma ekki.
Í þessu sambandi finnst mér fólk fara offörum í því að dæma, tökum til dæmis umræðuna um útlendingahatur sem verið hefur bæði í fjölmiðlum og á Alþingi, þar ætlar fólk að ganga af göflunum af því að Frjálslindir hafa sett það fram að það eigi að skoða hvort þeir sem hér vilja setjast að hafi brotið lög í sínu heima landi, en síðan getum við ætlast til þess að fólki sem ekki er á sakaskrá sé meinað að koma hingað, ha kommon, reynum nú að vera örlítið samkvæm sjálfum okkur í málflutningi okkar.
Læt þetta duga í kvöld en læt í mér heyra um helgina.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 21.2.2007
Rannsóknarblaðamennsk.
Jæja þá leggur maður á stað hér, við verðum síðan að sjá hverju það skilar þegar upp er staðið.
Það er þannig, að í upphafi skildi endirinn skoða, mikið finnst mér skorta á það svona almennt séð í öllu því sem yfir gengur í deiglunni í dag.
Mér finnst það í sjálfu sér gott mál að vera með gagnrýnna fjölmiðla og oft gera þeir gott í að hjálpa fólki að vekja athygli á hlutum sem almenningur fær ekki komið á framfæri, en það er líka alveg ljóst að það vald sem liggur í hendi fjölmiðla er mikið og því verður að beita með aðgát.
Því segi ég þetta núna, að undarfarnar vikur hefur þessi tegund af fjölmiðlun verið meira áberandi í sjónvarpi en kannski oftast áður.
Það eru fyrst og fremst tveir þættir í sjónvarpi sem hafa verið að fletta upp málum sem eru umdeild, en það er Kompás stöðvar 2 og Kastljós ríkissjónvarpsins.
Nú er það svo e byrjum á Kompás að margt hefur verið gert þar sem er gott og mög erfið mál verið tekin þar og gerð góð skil, en svona almennt séð finnst mér ekki vera nóg að leggja til atlögu og rífa það niður sem fjallað er um hverju sinni, heldur verður að fylla uppí með einhverju betra í staðinn, síðan finnst mér að það eigi að setja skorður við því að það sé hægt að taka fólk af lífi í beinni útsendingu.
Við getum öll haft mismunandi skoðanir á mönnum og málefnum, en það á EINGINN skilið þá meðferð sem Guðmundur í byrginu fékk, það snýst ekkert um álit mitt á honum eða því máli öllu, heldur hitt að hver skal saklaus vera þar til sekt hans er sönnuð og svo hitt að hann eða hver annar sem er eiga aðstandendur, fólk sem í flestum tilfellum hefur ekkert af sér gert, síðan á fólk börn sem geta ekki ákveðið hvar þau standa og það verður að teljast full sanna að þau eiga ekki skilið að lenda í því að horfa uppá foreldra sína í sjónvarps umfjöllun á þann hátt sem um ræðir í þessu sérstaka tilfelli.
Við verðum að gera okkur ljóst að hafa skal aðgát í nærveru sálar, það er algilt hvort sem við teljum hana seka eða saklausa.
Hvað Kastljósið varðar þá verður það að teljast gott og þarft að opna á það sem virðist hafa farið fram á upptökuheimilum út um allt land, en eins og aðrir í þessari rannsóknarblaðamennsku virðist enginn vita hvenær er komið nóg og mál að láta kurt liggja og leifa því fólki sem virkilega á um sárt að binda að fá hjálp hjá þeim sem eru færir um að veita hana.
Jæja þá er svona kannski búið að taka tappann úr hvað varðar fortíðina og hægt að halda sig í núinu hvað umræðuna varðar, en meira um það síðar.Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 19.2.2007
Fyrsta bloggfærsla
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Fjölskyldan
Síðurnar okkar í fjölskyldunni bæði stórra og smárra.
- Vegurinn til Ljóssins Vefsíðan mín um andlegmál.
- Andatal Um andleg mál fyrst og fremst
- Ástin mín.
- Kristín, Jónas og Prinsinn
- Patrekur og Sara Lind
- Bloggsvæði Ágústu