Vimmerby.

Í dag var farið til Vimmerby þar sem Astrid Lindgren var fædd en þar er garður sem heitir Astrid Lindgrens värld og er hann um allar þær sögupersónur sem þessi mikli rithöfundur skóp og þá heima sem þær lifðu i, við hittum þarna fyrir Emil, Línu Langsokk, Ronniu ræningjadóttur, bróður minn ljónshjarta og marga fleiri frægar persónur, annars er það þannig að þessi garður er frábær fyrir börn, en kannski ekki eins fyrir svona gamlingja eins og okkur, en það var voða gaman að koma þarna og vissulega fann maður barnið í sjálfum sér Halo.

Annars var dagurinn fínn í heild sinni, 30 stiga hiti og við bara í rólegheitum að dunda okkur í garðinum og á leiðinni fram og til baka, við fundum einhverjar búðir í Vimmerby og gátum meira að segja keypt eitthvað hahaah og svo gátum við líka fundið hamborgara sko, bara nokkuð góða Happy, annars lifum við ekki mikið á svoleiðis mat heldur eldum okkar mat sjálf.

Þetta er orðið gott í dag, á morgun er síðasti dagurinn okkar hér í smálöndunum en á Mánudaginn höldum við áleiðis til Noregs.


Hvíldar og þvottar dagur.

Í dag var afslöppunar dagur. Enda veitti ekki af þar sem dagurinn í gær var svolítið strembinn og á morgunn á að fara í Astrid Lindgren garðinn. Það er um 3 klukkutíma akstur þangað. Þannig að það þarf að leggja að stað snemma í fyrramálið til að eiga daginn fyrir sér í garðinum.  Við fórum samt í morgunn smá rúnt hér í kring að skoða okkur um og aftur í kvöld. Það er rosalega fallegt allstaðar hérna. Finnbogi var svo upptekinn eitt skiptið að horfa í kringum sig að þegar hann leit aftur á veginn þá sá hann 3 akreinar og vissi ekki á hvaða akrein hann átti að vera, við nánari athugun þá voru þær bara tvær, hann var keyra upp á gangstéttinni en  fattaði það ekki fyrr en Rannveig benti honum á það. Taka skal fram að aðeins var ekið á 10 km hraða. Fyrir utan smá rúnti og afslöppun þá var ákvað að nota daginn til að þvo þvott. Það er alveg æðislegt að vera hérna, svolítið öðruvísi en síðast þegar við komu til Svíþjóðar, þá var ætlast til þess að við mundum deila herbergi með mörgum, og þeir sem þekkja þá sögu vita að við létum ekki bjóða okkur það, gengum út og fengum gistingu á hóteli. Núna er við á farfuglaheimili sem buðu okkur sér hús. Það er mjög rúmgott og allt sér, eldhús og snyrtiaðstaða, en venjulega á farfuglaheimilum er sameiginlegt eldhús og snyrtiaðstaða. Þegar við fórum að skoða bæklinga hér í dag þá komust við að því að þetta hús heitir Gullgrafahús, þetta hús var byggt árið 1984 en er byggt eins og gullgrafararnir byggðu hér áður fyrr. Og í einu bæklingnum er boðið þetta hús á leigu sem rómatískar helgar. Þá er ýmislegt dekur innifalið í verðinu. Við pöntuðum ekkert svoleiðis enda dekstrum við hvort annað vel. En það er semsagt annaðhvort ökkla eða eyra hér í Svíþjóð. Reynt að troða manni inn á annað fólk eða boðið upp á allt sér. Kannski eru svíjar að bæta okkur upp ómeðvitað veruna síðast þegar við komum.


Gekås!

Þá er komið að því, í dag förum við að versla, ætlum að fara í (samkvæmt lýsing) stærst vöruhús í norður Evrópu Happy.

Dagurinn er tekinn frekar snemma og lagt af stað kl hálf átta því að þetta er yfir tveggja tíma keyrsla, reyndar nær þremur tímum, ferðin uppeftir gekk bara vel, við stoppuðum einu sinni til að fá okkur kaffi og brauð sem Rannveig smurði áður en við lögðum í hann, þegar að í vöruhúsið kom var það jú stórt það var ekki spurning, en samt var bara nokkuð gott að vinna sig í gegnum það ef svo má orða það, við gátum fatað okkur upp fyrir næsta árið eða þannig hehe, en við höfum haft þann háttinn á undanfarin á að nota utanlandsferðirnar okkar til að kaupa föt og svoleiðis sem maður kaupir svona til lengri tíma.

Uppúr miðjum degi vorum við tilbúin að halda til baka og gekk þá vel og heim komum við um átta leitið og vorum mjög sátt við daginn, það er að segja það sem liðið var af honum, því að þegar heim kom hófst orrusta við flugur J, en það er búið að vera 30 stiga hiti í dag og þegar að fór að kólna fóru flugurnar af stað og það nóg af þeim hehe, við erum eins og nafnið ber með sér (Långasjö) rétt hjá vatni og því er hér nóg af allskonar flugum, en þó aðallega rikmý eins og við þekkjum við Íslensk vötn og hefur því þótt ég einstaklega gómsætur, náttúrulega alltaf sætur en svona gómsætur æææi veit ekki kannski alvegeins gott að vera laus við það ha hehehe.

Jæja ætli þetta sé ekki orðið gott í dag, kem þessu vonandi inn á netið á morgun, hef átt í smá veseni að komast á netið hér.


Långasjö.

Góður dagur í dag, rann upp með sól og logni, við tókum daginn rólega fengum okkur morgunmat og dunduðum okkur fram undir hálf ellefu, en þá lögðum við í hann og ætluðum bara að fara stutt í þorp sem heitir Emmaboda, en enduðum í Växjö sem er svona 40 mínútum lengra en ætlað var og veltumst þar um aðeins og skoðuðum í eina verslunarmiðstöð og héldum síðan heim aftur.

Fengum okkur blund síðdegis og síðan fórum við í góðan göngutúr niður að vatninu og síðan meðfram því nokkurn spöl og síðan heim aftur, eins og ég sagði í upphafi búinn að vera góður dagur, á morgun er áætlað að fara í stærsta markað í norður Evrópu, eða svo segir Svíinn í það minnsta Undecided.

Læt þetta duga að sinni, er í smá vandræðum með að komast á netið, því við erum útí sveit og ekki tenging á næsta horni hahaha.


Góðan daginn Sverge.

Jæja þá er komið að Svíum að hýsa okkur næstu vikuna eða svo, vöknuðum snemma nokkuð vel hvíld og tókum saman eftir morgunmat og héldum útá sænskar hraðbrautir, ferðinni heitið í smálöndin þar sem við ætlum að vera í 6 nætur.

Ferðin gekk bara vel þó að vinkona okkar í GPS inu hafi verið frekar hljóðlát áfram, komum milli 12 og 1 í Langasjö, en það er nafnið á staðnum sem við verðum á, erum hér á farfuglaheimilli og fengum bara svítu sko hehe.

Fórum síðan á rúntinn að kaupa í matinn og enduðum niður í Karlskrúna sem er 47 km héðan (kannski í lengri kantinum Smile) en það var bara gaman að skoða aðeins, á heimleiðinni villtumst við aðeins því að vinkona okkar neitaði bara alveg að tala við okkur fyrr en hún sagði „komin á áfangastað", ja það er alaveganna ekki henni að þakka Cool.

Áttum síðan rólegt kvöld hér í slotinu og fórum sátt að sofa.


Norðurlandabúar i vanda.

Nú liggja Danir í því, ég lagði nefnilega af stað í morgun (21.07) kl 03:27 frá heimili mínu á Akranesi áleiðis til Danmerkur ásamt Rannveigu konu minni J, það var haldið sem leið lá til Keflavíkurflugvallar og stigið um borð í Flugvél Iceland Express kl 07:00 og farið í loftið 20 mínútum síðar.

Við lentum á Billund flugvelli kl 12:15 að staðartíma, við drifum okkur að sækja bílaleigubílinn hjá Hertz og drífa okkur svo af stað, gleymdi að geta þess að með í ferð í nýleg vinkona okkar sem heldur til í forláta GPS tæki og er hún Enskumælandi og öllu að jöfnu talar hún frekar mikið þegar við erum heima og þá oft óþarfa athugasemdir að því mér finnst Blush, en hvað um það nú þegar við vorum komin í Danaveldi við hún bara ekki segja neitt að heitið gat og það litla sem hún sagði var þá helst (í lauslegri þýðingu) „síðasta gervihnattar staða", maður tók þessu nú bara létt til að byrja með og nái fyrsta áfangastað enda vara hann bara rétt hjá Billund, en síðan átti að keyra í neinum hveli yfir til Svíþjóðar í náttstað og það fór nú aðeins að rjúka úr mínum þegar hún hélt áfram að þegja og segja sem minnst, en yfir Eirarsund komumst við nú einhvern veginn og upp til Lundar, en þar sofum við í nótt á farfuglaheimili sem er örlítið skondið, því að það er til húsa í gömlum járnbrautar vögnum, en það er bara ljómandi huggulegt en svolítið þröngt um mann Grin.

En samsagt gekk ferðin bara vel og vel þreytt fórum við snemma að sofa góða nótt.


Írskir dagar hér á Akranesi.

 

Það eru Írskir dagar hér á Akranesi um helgina með tilheyrandi húllumhæi Grin, við hjónin höfum nú svo sem ekki verið á neinu flippi fyrir það því Rannveig er að vinna og það svona í meirikantinum því það er nóg um að vera hjá henni í vinnunni, hún er staðgengill forstöðukonunnar.

En aftur að Írskum dögum, við fórum í gærkvöldi að horfa á Írska og Skoska dansa, það voru börn sem sýndu og voru þetta svona dansar sem voru dansaðir við samkomur heldrafólksins um og fyrir 1800, það var gaman að sjá þetta en kannski hægt að standa lengi og horfa því að fyrir mann eins og mig vara þetta nú allt svona svipað á að sjá Tounge.

Síðan fórum við með hinum unglingunum og hlustuðum á Jónsa í svörtum fötum, ja það er að segja Jónsi var ekki í svörtum fötum (á mynd því til staðfestingar)Írskir hahaha, aftur á móti var hann með hljómsveitina sína með sér sem heitir Í SVÖRTUM FÖTUM eins og allir vita, það er alltaf gaman að Jónsa og félögum og líkaði okkur vel, síðan steig á svið sjálfur Björn Jörundur og að sjálfsögðu Ný Dönsk með honum, jú jú ljómandi flutti lög sem maður hefur verið að raula í langan tíma sum hver í það minnsta.

Vorum komin heim fyrir miðnætti enda við bæði alveg laus við að þurfa að innbyrða alkóhól við svona tækifæri eða yfirleitt þannig að þegar þessu var lokið fórum við samsagt heim að sofa, veit ekki hvort ég nenni eitthvað að verða á rápi í dag Rannveig fór í vinnuna fyrir hálf tólf og kemur ekki heim fyrr en eftir hálf tólf í kvöld, það kemur sjálfsagt bara í ljós.


Sumarbústaðarferð.

 

Það er föstudagurinn 27 Júlí og við erum að fara í sumarbústað, þetta var ákveðið með stuttum fyrirvara, eða á síðasta Mánudag, Rannveig gat fengið bústað hjá SFR og það var ákveðið að kela sér yfir helgina og gera einskonar fjölskylduferð, það er við Rannveig, Tengdamamma, Biggi og Elsa.

Komum hér um kl 16:00, það er að segja við og Tengdamamma, það var byrjað að koma sér fyrir bera inn matinn og föt raða í ísskápinn og svoleiðis, síðan var slagað á fram á kvöldmat, Biggi kom ekki fyrr en eftir matinn og svo var farið að fást við heitapottinn, það reyndist vera opið fyrir hann og síðan tekur 3 tíma að láta renna í hann og svo þegar loksins var komið í hann nóg vatn reyndist hann hálfkaldur eða 34-5 gráður sem er nú svolítið  kalt ekki satt?

Við vorum hér fram á Mánudag og áttum góða helgi þótt það væri svolítill strekkingur og frekar kalt, það komu fullt af gestum sem þáðu kaffi og með því eins og sagt var í sveitinni í gamladaga hahaha, ætla að setja inn eitthvað af myndum hérna líka.


Upphitun.

  Jæja þá er líklega kominn tími til að fara að hita upp, við erum nefnilega að fara leggja upp í norðurlandaferð 21 Júlí og eins og alltaf verður haldin dagbók hér og greint fá því sem hæðst ber hverju sinni Tounge .

Annars er það bara þannig að mér finnst ekki að ég hafi mikið um að skrifa í þeim dúr sem ég hef lagt upp með, það eru þvílíkar hamfarir í þjóðmálaumræðunni og þá með þeim nótum að hún er bara neikvæð og ég nenni ekki að fara inní það meira en nauðsinkrefur, mér finnst að þó að gengið lækki (sem reyndar er ekki gott fyrir fólk sem ætlar að fara til útlanda Crying) og olían hækki þá hljóti að vera hægt að fjalla um jákvæða hluti í þjóðfélaginu og segja frá því góða sem gerist á hverjum degi, það mætti freistast til þess að álykta  á þann veg að það gæti þá kannski hjálpað fólki að takast á við allt hitt sem er í gangi ekki satt.

Því að það er svo mín skoðun að þegar upp er staðið er það oftast við sjálf sem ráðum því hvernig okkur reiðir af í ólgusjó lífsins, þó að ég viti það mæta vel að á því eru undantekningar þar sem áhrif óviðráðanlegra hluta ráða meiru en fólk sjálft fær ráðið við.

Með baráttukveðjum gengið upp olían niður Grin


Ferðalok.

 

Jæja þá erum við komin heim, það hefur aðeins dregist að koma ferðalokum inn hér, eins og allaf fer maður á kaf í annað.

En samsagt við komum heim á Sunnudaginn og gekk ferðin vel, það var vaknað kl 07:00 og fengið sér að borða, síðan var farið sem leið lá út á flugvöll, það gekk allt saman mjög vel og í loftið fórum við á réttum tíma, mæðgurnar lögðu sig nú á heimleiðinni, ég reyndi að gera það sama en gekk misjafnlega (ég sem er vanur að sofa eins og steinn) því ég sat við ganginn og það var svo mikil umferð um hann og alltaf verið að reka sig í mig Devil, en svona er þetta hef ekki ennþá efni á einkaþotu sko hehehe.

Lentum í Keflavík fimm mínútum á undan áætlun þar sem Biggi beið eftir okkur með bílinn og síðan var brunað í Hafnarfjörð, þessi ferð gekk mjög vel og tengdamamma er í skýjunum með hanna sem kannski skiptir mestu, síðan hitt að við nutum þess að vera með hana og fannst það alveg frábært að geta gert þessa ferð að veruleika.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Finnbogi Rúnar Andersen
Finnbogi Rúnar Andersen
Ég hef haft skoðanir á þjóðfélagsmálum alla æfi, en sjaldan sett það fram nema við þá sem eru í kringum mig. En nú ætla ég að reyna að deila þeim með öðrum og vona að það verði öðrum til skoðunarmindunar.  Ég bið fólk að hafa það hugfast að ég horfi á hlutina útfrá sjónarhól dulspekinar, því þar er minn sjónarhóll.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband